Vision X Unite
Hannaðu þinn eigin ledbar!
Nýjung frá Vision X. Með þessu nýja kerfi getur þú raðað saman ljósum á ledbarið eftir eigin höfði. Öflug ljós frá gæðaframleiðanda.
- Lengdir í boði eru 6”| 12”| 20”| 30”| 40”| 50” (beinn leiðari) eða 20”| 30”| 40”| 50” (boginn leiðari)
- 8 mismunandi kastara í boði til að raða á leiðarann, hægt að blanda saman að vild:
- Svartur eða hélaður bakgrunnur
- Flóð- eða punktgeisli
- Hvít eða gul lýsing
- Hágæða CREE díóður
- 2000 lumen per kastara (hvítt ljós)
- IP68/69K vatnsvörn á húsi
- Hægt að hafa alla kastara á einum rofa eða skipta upp (t.d. gul þokuljós til hliðanna á sér rofa)
- Öflugar hliðarfestingar en einnig fáanlegar bakfestingar þar sem pláss er af skornum skammti