ARB BASE Rack

Toppgrindur frá ARB

ARB BASE Rack

Lágbyggð toppgrind, alsoðin úr áli. Dovetail-braut liggur allan hringinn og eftir hverjum þverbita, svo aukahlutir festast hvar sem er og losna án þess að hreyfa annað.

Stærðir
14 upp í 3 m
Burðargeta
275 kg mest
Ábyrgð
3 ár frá ARB

Af hverju BASE Rack

Sterk, létt og einföld í notkun

BASE Rack er hönnuð af ARB í Ástralíu fyrir jeppa, pallbíla og sendibíla. Hún hefur styrk stálgrindar en vegur brot af því.

Dovetail-braut allan hringinn

Dovetail-braut allan hringinn

Aukahlutir festast hvar sem er á ytri brún og þverbitum. Ekkert þarf að renna eftir braut eða færa annað til.

Lágbyggð, án undirramma

Lágbyggð, án undirramma

Grindin situr þétt við þakið og er fest beint á bílinn. Minna vindhljóð og lægri heildarhæð.

Alsoðin úr áli

Alsoðin úr áli

Róbótasoðin í eitt stykki, engar skrúfur eða hnoð. Þverbitarnir eru styrktir að innan og hver þeirra ber 25 kg.

Lagnir inni í bitunum

Lagnir inni í bitunum

Endalokin eru laus svo leiða má kapla fyrir ljós og annan búnað inni í grindinni.

Tvískipt í stærstu stærðum

Tvískipt í stærstu stærðum

Lengstu grindurnar, 2415–2995 mm, eru tvískiptar og bera allt að 275 kg. Fyrir sendibíla og stærstu jeppana.

Dufthúðuð og endingargóð

Dufthúðuð og endingargóð

Svört dufthúð sem þolir veður, salt og sand. Engir festipunktar standa upp úr svo allt yfirborðið nýtist.

Festingar og stærðir

Ein grind, margar leiðir upp á bílinn

Grindin sjálf er sú sama. Það sem breytist er festisettið sem tengir hana við bílinn.

Á þakið

Sérsniðið festisett á fasta punkta eða í stað þakboga. Oftast fylgir vindskeið með.

Rennufesting

Fyrir bíla með rennur á þakinu, eins og Land Cruiser 60–80, Patrol og eldri Defender. Fjögurra og sex fóta sett, tvær hæðir.

Á pallhús

ARB festisett fyrir Ascent og Classic pallhús. Við smíðum sjálf festisett fyrir Rockalu og SmartCap pallhús.

Pallgrind

ARB Bed Rack á pallinn með BASE Rack ofan á. Hentar fyrir topptjald, kassa eða vinnubúnað.

Stærðir í boði

Lengd × breidd (mm) Þverbitar Burðargeta Þyngd
1255 × 1155 5 125 kg 12,7 kg
1255 × 1285 5 125 kg 14,3 kg
1255 × 1445 7 150 kg ≈ 16 kg
1545 × 1155 6 150 kg ≈ 15,5 kg
1545 × 1285 6 150 kg 17,1 kg
1545 × 1445 6 150 kg 18,5 kg
1835 × 1155 7 175 kg 18,5 kg
1835 × 1285 7 175 kg 19,9 kg
1835 × 1445 7 175 kg 21,5 kg
2125 × 1285 8 200 kg 22,8 kg
2125 × 1445 8 200 kg 24,5 kg
2415 × 1445 Tvískipt 9 225 kg 31 kg
2705 × 1445 Tvískipt 10 250 kg 35 kg
2995 × 1445 Tvískipt 11 275 kg 37 kg

Burðargeta grindarinnar samkvæmt ARB Europe. Leyfileg þakþyngd bílsins ræður alltaf: nettó burður er þakþyngd bílsins að frádreginni þyngd grindar og festisetts. Hver þverbiti ber mest 25 kg. Við staðfestum rétta stærð fyrir þinn bíl.

Bílar

Passar á þinn bíl?

ARB framleiðir festisett fyrir þessa bíla og við smíðum sjálf festisett fyrir Ineos Grenadier og fyrir Rockalu og SmartCap pallhús. Listinn er ekki tæmandi: með rennu- eða sérsmíðuðum festingum fer grindin á flesta bíla. Sérðu ekki þinn bíl? Hafðu samband.

Þak á þakRennur rennufestingPallhús á pallhúsPallgrind á pallDRIF festisett smíðað hjá okkur

Enginn bíll fannst. Hafðu samband og við athugum málið.

Toyota

  • Land Cruiser 300 (2021–)Þak
  • Land Cruiser 200 (2007–2021)Þak
  • Land Cruiser 200 pallbílsbreyting (dual cab)Þak
  • Land Cruiser 100 / 105 og Lexus LX470Þak
  • Land Cruiser 80Rennur
  • Land Cruiser 76 / 78ÞakRennur
  • Land Cruiser 79 single og dual cabÞakRennur
  • Land Cruiser 60Rennur
  • Land Cruiser Prado 250 (2024–), líka með sóllúguÞak
  • Land Cruiser Prado 150 (2009–2024)Þak
  • Land Cruiser Prado 120 (2003–2009)Þak
  • Land Cruiser Prado 90 (1996–2003)Rennur
  • Hilux (2026–)ÞakPallhús
  • Hilux (2015–2025), líka með hákarlsuggaÞakPallhúsPallgrind
  • Hilux (1997–2015)Þak
  • 4Runner (1984–2023)Þak
  • FJ CruiserÞak
  • Fortuner (2015–2021)Þak
  • Tacoma (2015–)Pallgrind
  • Tundra (2022–)Pallgrind
  • Hiace (2019–), langurÞak

Ford

  • Ranger (2022–), dual cab og extra cabÞakPallhúsPallgrind
  • Ranger Raptor (2022–)ÞakPallhúsPallgrind
  • Ranger Super Duty (2026–)ÞakPallhúsPallgrind
  • Ranger og Raptor (2011–2022)ÞakPallhús
  • Ranger USA (2019–)Þak
  • Everest (2015–)Þak
  • Bronco, 4 dyra (2021–)Þak
  • F-150Pallgrind
  • Transit (2013–), L2–L4Þak
  • Transit Custom / Tourneo Custom (2013–2023)Þak
  • Transit Custom / Tourneo Custom (2023–)Þak

Nissan

  • Patrol Y62Þak
  • Patrol Y61 / GURennur
  • Patrol Y60 / GQRennur
  • Patrol MQRennur
  • Navara NP300 / D23 (2015–)ÞakPallhús

Mitsubishi

  • Triton / L200 (2024–)ÞakPallhús
  • Triton / L200 (2015–2024)ÞakPallhús
  • Triton / L200 MJ (til 1996)Þak
  • Pajero Sport (2015–)Þak
  • Pajero (1991–2000)Rennur

Volkswagen

  • Amarok (2023–)ÞakPallhúsPallgrind
  • Amarok (2010–2022)ÞakPallhús
  • Transporter / Multivan / Caravelle T5–T6.1Þak
  • Crafter (2006–2017)Þak
  • Crafter (2017–), L2–L4Þak

Mercedes-Benz

  • Sprinter (2006–), allar lengdirÞak
  • X-Class (2018–)Pallhús

Isuzu

  • D-Max (2020–)ÞakPallhús
  • D-Max (2012–2020)ÞakPallhús
  • MU-X (2013–)Þak

Land Rover

  • Defender 110 (2020–)Þak
  • Defender 90 / 110 / 130 (eldri) og CountyRennur
  • Range Rover Classic (1970–1995)Rennur

Jeep

  • Wrangler JL, 4 dyraÞak
  • Gladiator JTÞak
  • Cherokee XJ (1984–2001) og KKRennur

Mazda

  • BT-50 (2021–)ÞakPallhús
  • BT-50 (2011–2020)ÞakPallhús

Ineos

  • Grenadier – DRIF smíðar festisett, 1835 × 1445 mmDRIF

Pallhús

  • Rockalu álpallhús – DRIF smíðar festisettPallhúsDRIF
  • SmartCap pallhús – DRIF smíðar festisettPallhúsDRIF
  • ARB Ascent og Classic pallhúsPallhús

Chevrolet / Holden

  • Colorado (2012–)ÞakPallhús

Suzuki

  • Jimny (2018–)Þak
  • Jimny, 5 dyra (2024–)Þak

GWM

  • Tank 300 (2023–)Þak
  • Cannon, Steed, V200 / V240 / X240ÞakPallhús

BYD

  • Shark 6 (2024–)Þak

Kia

  • Tasman (2025–)Þak

Aukahlutir

Aukahlutir á lager

Allt festist í dovetail-brautina. Þessir aukahlutir eru til hjá okkur og má setja beint í körfu.

Festingar og millistykki

Brúarplata, mjó

Brúarplata, mjó

Plata sem spannar milli tveggja þverbita. Undirstaða fyrir kassa, tjöld og annan búnað.

Vörunr. 1780420
Brúarplata, breið

Brúarplata, breið

Breiðari brúarplata fyrir þyngri búnað og stærri festifleti.

Vörunr. 1780430
Lárétt festing, mjó

Lárétt festing, mjó

Alhliða festing til að bolta búnað flatt ofan á grindina.

Vörunr. 1780440
Lárétt festing, breið

Lárétt festing, breið

Breiðari útgáfa fyrir stærri eða þyngri búnað.

Vörunr. 1780450
Lóðrétt festing, mjó

Lóðrétt festing, mjó

Festir búnað lóðrétt á hlið grindarinnar, t.d. skóflu eða ljós.

Vörunr. 1780460
Lóðrétt festing, breið

Lóðrétt festing, breið

Breiðari lóðrétt festing fyrir stærri búnað.

Vörunr. 1780470
T-slot breytistykki (par)

T-slot breytistykki (par)

Tengir búnað með T-spori, t.d. topptjöld, við dovetail-brautina.

Vörunr. 1780230
Ledbar ljósafesting

Ledbar ljósafesting

Festir ljósabar beint á dovetail-brautina framan á grindinni.

Vörunr. 1780480

Bindingar og strappar

Augakrókar (4 stk)

Augakrókar (4 stk)

Augaboltar sem renna í dovetail-brautina hvar sem er á grindinni.

Vörunr. 1780200
Fjaðrandi festiaugu (par)

Fjaðrandi festiaugu (par)

Leggjast niður þegar þau eru ekki í notkun og skrölta ekki.

Vörunr. 1780210
Strappar 3 m (par)

Strappar 3 m (par)

Skrallstrappar með krókum sem smella beint í dovetail-brautina.

Vörunr. 1780370
Varadekksfesting

Varadekksfesting

Y-strappi sem heldur varadekki föstu á grindinni.

Vörunr. 1780380

Búnaður á grindina

Gaskútsfesting

Gaskútsfesting

Heldur gaskút uppréttum og föstum á grindinni.

Vörunr. 1780250
Skóflufesting

Skóflufesting

Heldur skóflu fastri á hlið eða ofan á grindinni.

Vörunr. 1780270
Drullutjakksfesting, Premium

Drullutjakksfesting, Premium

Læsanleg festing fyrir Hi-Lift drullutjakk.

Vörunr. 1780280
Drullutjakksfesting

Drullutjakksfesting

Einföld festing fyrir Hi-Lift drullutjakk.

Vörunr. 1780290
Festing fyrir sandbretti

Festing fyrir sandbretti

Festing fyrir sandbretti ofan á grindina. Festipinnar seldir sér.

Vörunr. 1780310
Markísufesting

Markísufesting

Föst festing fyrir markísu á hlið grindarinnar.

Vörunr. 1780240

Sérpöntun

Fleiri aukahlutir

ARB býður fjölda annarra aukahluta fyrir BASE Rack. Við pöntum þá fyrir þig, oftast með stuttum fyrirvara. Verð eru viðmiðunarverð með vsk. og fara eftir stærð grindar.

Handrið allan hringinn

Handrið allan hringinn

Heilt handrið sem heldur farangri á sínum stað.

  • Allar stærðir
Verð frá 104.000 kr
Fá tilboð →
Handrið 3/4 og 1/4

Handrið 3/4 og 1/4

Handrið að framan og á hliðum, opið að aftan.

  • Eftir stærð
Verð frá 62.000 kr
Fá tilboð →
Hliðarhandrið

Hliðarhandrið

Lágt handrið á hliðarnar fyrir vinnubíla.

  • 1255–2995 mm
Verð frá 61.000 kr
Fá tilboð →
Vindskeið

Vindskeið

Dregur úr vindhljóði og loftmótstöðu.

  • 1155 / 1285 / 1445
Verð frá 32.000 kr
Fá tilboð →
Rúllusett

Rúllusett

Rúlla að aftan sem auðveldar að koma farangri upp.

  • 1155 / 1285
Verð frá 21.000 kr
Fá tilboð →
Brúsafestingar

Brúsafestingar

Fyrir einn eða tvo brúsa, lóðrétt eða lárétt.

  • 4 útgáfur
Verð frá 30.000 kr
Fá tilboð →
Festing fyrir topptjald

Festing fyrir topptjald

Festir topptjald beint á dovetail-brautina.

  • Flest tjöld
Verð frá 26.000 kr
Fá tilboð →
Festing fyrir sandbretti á hlið

Festing fyrir sandbretti á hlið

Sandbretti á hlið grindarinnar, fyrir 2–4 bretti.

  • Tred / Maxtrax
Verð frá 40.000 kr
Fá tilboð →
Vinnuljós, þrílita

Vinnuljós, þrílita

Hvítt, gult og rautt ljós sem festist hvar sem er á grindina.

  • 30W
Verð frá 15.000 kr
Fá tilboð →
Slimline ljós

Slimline ljós

Flatt LED-ljós sem situr undir framkanti grindarinnar.

  • LED
Verð frá 88.000 kr
Fá tilboð →
Raflagnasett

Raflagnasett

Lagnir í gegnum þakið með vatnsþéttri hulsu.

  • 3 rásir
Verð frá 14.000 kr
Fá tilboð →
Markísufestingar

Markísufestingar

Hraðlosun eða HD-festing fyrir 270° markísur.

  • 2 útgáfur
Verð frá 14.000 kr
Fá tilboð →

Tilboð

Svona færðu rétta grind

Rétt stærð og festisett fer eftir bílnum og því sem á að fara á grindina. Við setjum saman pakka sem passar.

Segðu okkur frá bílnum

Tegund og árgerð, og hvort grindin á að fara á þakið, pallhús eða pallinn.

Við veljum stærð og festingar

Við finnum rétta stærð, festisett og aukahluti fyrir það sem þú ætlar að flytja.

Þú færð tilboð

Tilboð með verði og afhendingartíma. Við getum líka séð um ásetningu.

Viltu BASE Rack á bílinn?

Hafðu samband og við gerum tilboð í grind, festingar og aukahluti.

Upplýsingar og myndir frá ARB, með fyrirvara um breytingar og prentvillur.