Fjöðrun

Old Man Emu frá ARB

Fjöðrun

Drif býður allar mögulegar, en ekki ómögulegar, fjöðrunarlausnir frá OME. Demparar, gormar, fjaðrir og loftpúðar sem eru hannaðir saman og prófaðir við erfiðustu aðstæður, fyrir daglegan akstur, drátt, mikla hleðslu og fjallaferðir.

Síðan 1976ástralskt merki
Bílategundir 200+sérsniðnar lausnir
Vörulínur 6demparar og fjaðrir

Heildarlausn

Fjöðrun sem vinnur saman

Úrvalið hjá OME er slíkt að við sýnum hér aðeins brot af því besta. Lykillinn er að demparar og gormar eða fjaðrir eru valin saman fyrir bílinn, þyngdina og notkunina. Hafðu samband og við finnum réttu lausnina fyrir þig.

Samhæft kerfi

Hver dempari er stilltur fyrir gormana eða fjaðrirnar sem honum fylgja. Þannig helst bíllinn stöðugur, hvort sem hann er tómur eða fullhlaðinn.

Prófað við erfiðar aðstæður

Verkfræðingar OME prófa samsetningar í hundruð klukkustunda í ástralska óbyggðunum, með gagnaskráningu á vegum og álagsprófunum á prófunarbekk.

Fyrir burð og drátt

Spil, stuðari, toppgrind, aukatankar og hjólhýsi. Fjöðrunin er valin eftir þyngdinni sem bíllinn ber í raun, ekki tómum bíl.

Hófleg hækkun

OME miðar yfirleitt við um 50 mm hækkun. Það gefur meiri veghæð og pláss fyrir stærri dekk án þess að skerða aksturseiginleika.

Gæði · Ending · Afköst

Góð uppfærsla

Nitrocharger

Tvöfaldir gasdemparar (twin-tube) sem eru stórt skref upp frá upprunalegu dempurunum. Hver dempari er stilltur fyrir bílinn og gormana sem honum fylgja, svo bíllinn verður stöðugri og þægilegri, bæði tómur og hlaðinn. Nýjasta kynslóðin heitir Nitrocharger Plus.

Gerð Twin-tubegasdempari
Stöng 18 mmhert króm
Ytra rör 1,6 mmstál

Helstu eiginleikar

  • Stimpill með miklu flæði sem dregur úr froðumyndun og hita í olíunni
  • 18 mm hert krómstöng sem þolir mikið álag
  • Sex ventladiskar, svo hægt er að stilla dempunina nákvæmlega fyrir hvern bíl
  • Þreföld olíuþétting og gasloki sem heldur köfnunarefninu inni
  • Ytra rör úr 1,6 mm stáli, 23% meiri vörn en hefðbundið 1,3 mm rör
  • Olía sem þolir hita og freyðir ekki, köfnunarefni eykur hitaþolið
  • Höggþolin hlíf yfir stönginni og fóðringar sniðnar að bílnum

Tæknilegt

Gerð Twin-tube gasdempari
Stöng 18 mm, hert króm
Ventlar 6 diskar, stilltir fyrir bílinn
Ytra rör 1,6 mm stál
Gas Köfnunarefni
Stillanlegur Nei, stilltur fyrir bílinn

64 mm innanmál

MT64

Hörkutól sem þrælvirka bæði á vegum og vegleysum. MT64 brúar bilið milli Nitrocharger og BP-51: monotube-dempari úr áli með 64 mm innanmáli, meiri olíu og stærri stimpli. Það þýðir minni hita og betri stjórn á löngum malarvegum og þvottabrettum.

Innanmál 64 mmmonotube
Stöng 22,5 mmhert króm
Ábyrgð 3 árótakmarkaður km

Helstu eiginleikar

  • Monotube með fljótandi stimpli sem skilur að olíu og köfnunarefni
  • Hús úr áli sem leiðir hita frá allt að 15 sinnum hraðar en stál
  • 64 mm innanmál fyrir meiri olíu og stærri stimpil og ventla
  • 22,5 mm hert krómstöng og endalok úr smíðuðu 6061 áli
  • Gormasæti með 6 stillingum í 5 mm þrepum, til að mæta mismunandi hleðslu
  • Vökvadempun í enda slags sem tekur mýkra á stærstu höggunum
  • Hörð anodíseruð húð og útskiptanleg hlíf yfir stönginni

Tæknilegt

Gerð Monotube
Innanmál 64 mm
Stöng 22,5 mm, hert króm
Hús Ál, hörð anodíseruð húð
Gormasæti 6 stillingar, 5 mm þrep
Stillanlegur Nei, stilltur fyrir bílinn
Ábyrgð 3 ár, ótakmarkaður km

Það allra, allra besta

BP-51

Stillanlegir demparar með innbyggðu framhjáhlaupi (internal bypass). Dempunin eykst eftir því sem nær dregur enda slagsins, svo bíllinn er mjúkur í venjulegri hæð en heldur fast við stærstu höggin. Keppnisfjöðrun á vegum og fjöllum.

Innanmál 51 mmbypass
Efni 6061 álanodíserað
Stilling 2 leiðirsamþj. og frákast

Helstu eiginleikar

  • Innbyggt framhjáhlaup: rásirnar eru inni í húsinu, svo demparinn passar inn í gorm án breytinga
  • Stöðuháð dempun, mjúkur í venjulegri hæð og stífur við enda slagsins
  • Sjálfstæð stilling á samþjöppun og frákasti, beint á bílnum
  • Hús úr 6061 áli með harðri anodíseraðri húð (type III) fyrir kælingu og tæringarvörn
  • Aðskilið forðabúr úr áli með meiri olíu og lægri olíuhita
  • Fljótandi stimpill skilur olíu frá köfnunarefni og kemur í veg fyrir froðu
  • Slípuð og hörð krómuð stimpilstöng

Tæknilegt

Gerð Bypass monotube með forðabúri
Innanmál 51 mm
Hús 6061 ál, type III anodíserað
Forðabúr Aðskilið, úr áli
Stilling Samþjöppun og frákast
Dempun Stöðuháð

Samanburður

Hvaða demparar henta þér?

Allar þrjár línurnar eru stilltar fyrir bílinn og fást með gormum eða fjöðrum sem passa. Munurinn liggur í hitaþoli, stillingum og því hve mikið er lagt á fjöðrunina.

Nitrocharger MT64 BP-51
Gerð Twin-tube gasdempari Monotube, 64 mm Bypass, 51 mm
Hús Stál Ál 6061 ál
Forðabúr Nei Nei Já, aðskilið
Dempun Hraðaháð Hraðaháð, vökvadempun í enda Stöðuháð
Stillanlegt Nei Gormasæti, 6 stillingar Samþjöppun og frákast
Hitaþol Gott Mjög gott Best
Hentar best Daglegur akstur, burður og malarvegir Ferðabílar og langir grófir vegir Mest krefjandi akstur og hámarksstjórn

Bíllinn ber meira en áður. Fjöðrunin á að gera það líka.

Upprunaleg fjöðrun er málamiðlun fyrir tóman bíl á malbiki. OME er hannað fyrir bílinn eins og hann er í raun, með búnaði og farangri.

Lyftu þér upp!

Gormar

Hágæða gormar fyrir flestar gerðir jeppa og pallbíla. OME gormar eru hannaðir fyrir hvern bíl og fást í mismunandi stífleika eftir því hve mikið er á honum, til dæmis með eða án spils, stuðara og ferðabúnaðar.

Efni Míkróblandaðgormastál
Áferð Pólýhúðsvört
Hækkun ≈ 50 mmalgengast

Helstu eiginleikar

  • Míkróblandað gormastál sem þolir sig og tæringu betur
  • Mótaðir á tölvustýrðum kjarna fyrir jöfn og nákvæm gæði
  • Forþjappaðir tvisvar, fyrir og eftir kúlublástur, sem minnkar spennu og lengir endingu
  • Fást með föstum eða breytilegum stífleika
  • Endar gormanna sniðnir að bílnum svo þeir passa nákvæmlega
  • Mismunandi stífleiki eftir hleðslu: léttir, miðlungs og þungir
  • Hannaðir og framleiddir í Ástralíu

Tæknilegt

Efni Míkróblandað gormastál
Framleiðsla Tölvustýrðir kjarnar
Meðhöndlun Forþjappaðir og kúlublásnir
Stífleiki Fastur eða breytilegur
Áferð Svört pólýhúð
Uppruni Ástralía

Fleygbogafjaðrir

Parabólufjaðrir og loftpúðar

Hátæknifjaðrir með loftpúðum eru dýrindis blanda þegar þarf að lesta jeppana hressilega. Loftpúðarnir bæta við allt að 600 kg burðargetu ofan á fjöðrina sjálfa, og þú stillir þrýstinginn eftir því hvað er á pallinum.

Aukaburður 600 kgmest, með púðum
Þrýstingur 0–45 psií hvorum púða
Fjaðrir 1000 kgmest grunnburður

Helstu eiginleikar

  • Hver loftpúði er notaður á bilinu 0–45 psi, sem gefur 0–600 kg aukalega burðargetu
  • Nýr innri samsláttarpúði, svo hægt er að aka með tóma púða og pumpa í þá þegar á þarf að halda
  • Þrjár leiðir til að stýra púðunum: ventill á bílnum, ARB Air Suspension Control eða ARB LINX
  • Parabólufjaðrir eru léttari en sambærilegar fjölblaða fjaðrir, þökk sé sterkara stáli og færri blöðum
  • Fjaðrir fást með grunnburði allt að 1000 kg
  • Loftpúðarnir eru skyldubúnaður með parabólufjöðrum, þar sem annað þrep fjaðrarinnar er fjarlægt

Tæknilegt

Gerð Parabólufjaðrir með loftpúðum
Aukaburður Allt að 600 kg
Þrýstingur 0–45 psi
Akstur tómur Já, 0 psi
Stýring Ventill, Air Suspension Control eða LINX
Hentar Pallbílar og mikil hleðsla

Fjallaflatjárn

Fjaðrir

Þetta eru ekki gömlu góðu flatjárnin, þetta eru hágæða fjallaflatjárn. OME blaðfjaðrir eru hannaðar til að fara vel með farþega þegar bíllinn er tómur og halda honum öruggum þegar hann er fullhlaðinn.

Pakki Tvö þrepá flestum afturfjöðrum
Blöð Dreginog tígulskorin
Prófun Álagá hverri gerð

Helstu eiginleikar

  • Tveggja þrepa fjaðrapakki á flestum afturfjöðrum, mjúkt tómt og stíft hlaðið
  • Dregin og tígulskorin blöð sem dreifa álaginu jafnt
  • Vafin augu (military wrap) sem auka öryggið
  • Smyrjanlegir nælonpúðar milli blaðanna sem draga úr núningi
  • Hljóðdeyfandi nælonfóður og boltaðar klemmur
  • Fullforþjappaðar svo fjöðrin haldi lögun sinni, og kúlublásnar á álagshlið
  • Álagsprófaðar og með flötum öxulfleti fyrir trausta festingu

Tæknilegt

Gerð Fjölblaða fjaðrir
Pakki Tveggja þrepa á flestum afturfjöðrum
Blöð Dregin og tígulskorin
Augu Military wrap
Núningur Smyrjanlegir nælonpúðar
Meðhöndlun Forþjappaðar og kúlublásnar

Allt sem fylgir

Smáatriðin skipta máli

Góð fjöðrun er meira en demparar og gormar. OME framleiðir líka hlutina sem halda kerfinu þöglu og endingargóðu.

OME fóðringar

Fóðringar

Fóðringar í fjaðraaugu og skakkla sem taka við höggum og halda fjöðruninni þéttri lengur.

Smyrjanlegir fjaðraboltar

Smyrjanlegir fjaðraboltar

Boltar í fjaðraskakkla sem hægt er að smyrja. Minna ískur og lengri ending á fóðringum.

OME fjöðrunarsett

Heil fjöðrunarsett

Demparar, gormar eða fjaðrir, fóðringar og festingar í einu setti, valið saman fyrir bílinn.

Fjöðrunarvörur sem við eigum á lager, til dæmis OME sett fyrir Suzuki Jimny, eru í vöruflokknum Fjöðrun →

Land Cruiser 79 með OME fjöðrun

Old Man Emu

Nefnt eftir emúanum

Emúinn heldur ótrúlegu jafnvægi þegar hann hleypur hratt yfir ójafnt land. Það er hugmyndin á bak við OME: stöðugleiki og stjórn, sama hvert er farið.

1976

Old Man Emu stofnað í Ástralíu.

1988

ARB kaupir OME og heldur áfram þróun og prófunum í ástralska óbyggðunum.

200+

Í dag býður OME sérsniðnar fjöðrunarlausnir fyrir yfir 200 algengar jeppategundir.

Tilboð

Svona finnum við réttu fjöðrunina

Fjöðrun er valin fyrir hvern bíl. Því meira sem við vitum um bílinn og notkunina, því betri verður niðurstaðan.

Segðu okkur frá bílnum

Tegund og árgerð, og hvaða búnaður er á honum: spil, stuðari, toppgrind, aukatankar eða pallhús. Dregur þú hjólhýsi eða kerru?

Við veljum samsetninguna

Demparar, gormar eða fjaðrir og stífleiki eftir þyngd og notkun. Við ráðleggjum líka um hækkun og dekkjastærð.

Þú færð tilboð

Tilboð með verði og afhendingartíma fyrir allt kerfið, eða einstaka hluti ef það hentar betur.

Hvaða fjöðrun hentar þínum bíl?

Hafðu samband núna og við finnum réttu lausnina fyrir þig.

Upplýsingar og myndir frá ARB og Old Man Emu, með fyrirvara um breytingar og prentvillur. Útfærslur og hækkun fara eftir bíl.