Apollo trukkaspil
Trukkaspil frá Apollo
Apollo trukkaspil
10 tonna spil fyrir trukka, björgunar- og þjónustubíla. Hönnuð fyrir ofurtóg, IP69K-vörn og einkaleyfisvarin SPOOLER-tækni sem leggur tógið rétt á tromluna, líka þegar togað er á ská.

Tvær útfærslur
Framspil eða hliðarspil?
Bæði spilin hafa 10 tonna togkraft og fást með 24V rafmótor eða glussamótor. Munurinn er hvar þau sitja á bílnum.

Apollo 22
Situr framan á bílnum. SPOOLER FRONT® tógleiðarinn leggur tógið rétt á tromluna þótt togað sé á ská.
- 24V rafmagn
- Vökvi
- 10.000 daN

Apollo-S 22
Fest á grind bílsins. Tógið liggur samsíða grindinni og spilið má staðsetja framarlega eða aftarlega.
- 24V rafmagn
- Vökvi
- 10.000 daN





Framfesting
Apollo 22
Tógleiðarinn er hluti af spilinu sjálfu. Hann leggur ofurtógið jafnt á tromluna, líka þegar togað er á ská, og hefur enga hreyfanlega hluta.
Helstu eiginleikar
- SPOOLER FRONT® tógleiðari, engir hreyfanlegir hlutar
- Leggur tógið rétt á tromluna þótt togað sé á ská
- Kemur í veg fyrir að tógið leggist yfir sig og kremjist
- Öflug viðnámsbremsa heldur álaginu
- IP67 / IP69K vörn gegn vatni og ryki
- Snúrufjarstýring fylgir
Rafmagn eða vökvi
| 22 EL | 22 HY | |
|---|---|---|
| Drif | 24V rafmótor | Vökvamótor |
| Afl | 320 A | 160 bar · 60 l/mín |
| Togkraftur, 1. lag | 10.000 daN | 10.000 daN |
| Tóg | 30 m ofurtóg | 30 m ofurtóg |
| Þyngd | 60 kg | 80 kg |
| Vörunúmer | APOL0022 | APOL0023 |
Málteikning Apollo 22 HY
Málteikningar fyrir aðrar útgáfur fást sendar ef þú ert að smíða festingar.




Hliðarfesting
Apollo-S 22
Hliðarspilið er fest á grind bílsins. SPOOLER SIDE® tæknin er með fastan útgangspunkt fyrir tógið, svo það liggur samsíða grindinni, og spilið má staðsetja framarlega eða aftarlega á bílnum. Hentar vel til sjálfsbjargar, dráttar og björgunar.
Helstu eiginleikar
- SPOOLER SIDE® með föstum útgangspunkti fyrir tógið
- Tógið liggur samsíða grind bílsins
- Má staðsetja framarlega eða aftarlega á grindinni
- Öflug viðnámsbremsa heldur álaginu
- IP67 / IP69K vörn gegn vatni og ryki
- Snúrufjarstýring fylgir
Rafmagn eða vökvi
| S 22 EL | S 22 HY | |
|---|---|---|
| Drif | 24V rafmótor | Vökvamótor |
| Afl | 320 A | 160 bar · 60 l/mín |
| Togkraftur, 1. lag | 10.000 daN | 10.000 daN |
| Tóg | 30 m ofurtóg | 30 m ofurtóg |
| Þyngd | 60 kg | 60 kg |
| Vörunúmer | APOL0025 | APOL0026 |
Málteikning Apollo-S 22 HY
Málteikningar fyrir aðrar útgáfur fást sendar ef þú ert að smíða festingar.
Togkraftur
Togkraftur eftir lögum á tromlunni
Togkraftur spils er mestur þegar lítið er af tógi á tromlunni og minnkar eftir því sem lögunum fjölgar. Tölurnar gilda fyrir allar fjórar útgáfurnar.
SPOOLER-tæknin
Tógið leggst rétt, í hvert skipti
SPOOLER er tógleiðari sem er innbyggður í spilið. Hann færir tógið jafnt til hliðanna yfir alla breidd tromlunnar, svo það leggst lag fyrir lag í stað þess að hlaðast upp á einum stað.
Ofurtóg
Af hverju ofurtóg?
Öll Apollo-spilin koma með 30 m ofurtógi úr UHMWPE. Það er léttara, öruggara og þægilegra í notkun en stálvír.
- Allt að 8 sinnum léttara en stálvír
- Fljótlegra að leggja út og auðveldara í meðförum
- Engin svipuhætta ef það slitnar
- Dregur ekki í sig vatn og ryðgar ekki
- Þolir útfjólubláa geislun
- Flækist ekki
- Auðveldara í flutningi og geymslu
- Varatóg fáanlegt
Samanburður
Allar útgáfur hlið við hlið
| Apollo 22 EL | Apollo 22 HY | Apollo-S 22 EL | Apollo-S 22 HY | |
|---|---|---|---|---|
| Festing | Framfesting | Framfesting | Hliðarfesting | Hliðarfesting |
| Tógleiðari | SPOOLER FRONT® | SPOOLER FRONT® | SPOOLER SIDE® | SPOOLER SIDE® |
| Drif | 24V rafmótor | Vökvamótor | 24V rafmótor | Vökvamótor |
| Afl | 320 A | 160 bar · 60 l/mín | 320 A | 160 bar · 60 l/mín |
| Togkraftur, 1. lag | 10.000 daN | 10.000 daN | 10.000 daN | 10.000 daN |
| Tóg | 30 m ofurtóg | 30 m ofurtóg | 30 m ofurtóg | 30 m ofurtóg |
| Þyngd | 60 kg | 80 kg | 60 kg | 60 kg |
| Bremsa | Núningsbremsa | Núningsbremsa | Núningsbremsa | Núningsbremsa |
| Vörn | IP67 / IP69K | IP67 / IP69K | IP67 / IP69K | IP67 / IP69K |
| Fjarstýring | Fylgir | Fylgir | Fylgir | Fylgir |
| Ábyrgð | 2 ár | 2 ár | 2 ár | 2 ár |
Aukahlutir
Aukahlutir fyrir Apollo
Allt sem þarf til að nýta spilið til fulls og fara vel með ofurtógið.
Snatcher, Tenser og Gripper
Þrír aukahlutir sem fá meira út úr ofurtóginu: létt talía sem tvöfaldar togkraftinn, strekkjari sem heldur spennu þegar tógið er vafið upp og bursti sem hreinsar það eftir notkun.
Fá tilboð í aukahlutiUmhirða tógs

Tenser 16
Heldur spennu á tóginu þegar það er vafið upp aftur, svo það grafi sig ekki niður og festist.
- Tóg allt að 16 mm

Gripper
Bursti sem hreinsar sand og óhreinindi úr ofurtógi án þess að skemma það.
- 14–20 mm


Hlíf yfir tromlu
Ver tógið fyrir höggum og óhreinindum. Skrúfast á tengistöng spilsins.
- Apollo 22 framspil
Talía, krókar og framlengingar

Snatcher 20
Létt talía sem tvöfaldar togkraftinn. Um 12 sinnum léttari en stálblökk.
- 20 t


Spottalás D14
Léttur og öruggur valkostur í stað spilkróks. Minni hætta á meiðslum.
- 14 mm


Framlenging 15 m
Framlenging úr ofurtógi með krók á öðrum enda og auga á hinum.
- 22 mm
- 15 m
- Brotþol 44 t

Fjarstýring


Sérpöntun
Svona færðu tilboð
Apollo-spilin eru sérpöntuð frá framleiðanda í Frakklandi. Við setjum saman tilboð sem passar þínu verkefni.
Segðu okkur frá verkefninu
Hvaða bíll, hvar spilið á að sitja og hvort þú vilt rafmagns- eða vökvaspil.
Við finnum réttu lausnina
Við förum yfir spil, tóg og aukahluti með þér og sendum málteikningar ef þú ert að smíða festingar.
Þú færð tilboð
Tilboð með verði og afhendingartíma. 2 ára ábyrgð á öllum vörum.
Vantar þig trukkaspil?
Hafðu samband og við gerum tilboð í spil og aukahluti fyrir þinn bíl.
Upplýsingar og myndir frá framleiðanda, með fyrirvara um breytingar og prentvillur.