Loftdælur

ARB loftdælur

Kolalaus eða með kolum?

Allt sem þú þarft að vita um loftdælur í jeppann: muninn á kolalausum mótor og mótor með kolum, hvað afköst og straumur þýða í raun, og hvaða dæla hentar þínum bíl og dekkjum.

Mest
260lítrar á mínútu
Kolalaus
+50%meira loft
Ábyrgð
3 árfrá ARB

Úrvalið

Fjórar loftdælur, eitt markmið

Allar ARB loftdælurnar eru fastar í bílnum, með rofa í mælaborð og tengi fyrir loftlæsingar. Smelltu á dælu til að sjá nánar. Við bjóðum líka ísetningu í flesta jeppa og pallbíla.

Munurinn

Kolalaus eða með kolum, í stuttu máli

Dælan sjálf, stimpillinn og strokkurinn, er svipuð. Munurinn liggur í rafmótornum sem knýr hana. Það ræður hraða, endingu, hita og því hvað dælan getur gert sjálf.

Hefðbundinn rafmótor

Með kolum

Kol (burstar) úr kolefni nudda við snúningshluta mótorsins og flytja strauminn. Einföld og margsönnuð tækni sem ARB hefur notað í loftdælur síðan 1985.

  • Lægra verð
  • Minni straumur, hentar minni rafkerfum
  • Fæst líka fyrir 24V (CKMA24 og CKMTA24)
  • Hægt að skipta um kol og gera við mótorinn
Ný tækni frá ARB

Kolalaus

Engin kol og enginn núningur. Stýrieining í dælunni skiptir straumnum rafrænt á milli vafninganna, fylgist með hita og spennu og stillir hraðann eftir álagi.

  • 50% meira loft en sambærileg dæla með kolum
  • Viðhaldsfrír mótor, ekkert sem slitnar
  • 100% vinnuhlutfall, getur gengið stanslaust
  • Snjöll vörn gegn spennufalli, yfirstraumi og ofhitnun
  • Engir liðar (relay) og hraðlosandi festing, einfaldari ísetning

Í raun

Hve lengi ertu að pumpa í?

Áætlaður tími til að pumpa í fjögur 35" dekk (35x12.5R17) úr 15 psi upp í 30 psi eftir akstur á úrhleyptu. Því stærri sem dekkin eru, því meira skiptir afkastageta dælunnar máli.

KolalausMeð kolum
Kolalaus tvöföldCKBLTA12
≈ 2:37 mín
Tvöföld með kolumCKMTA12
≈ 3:29 mín
Kolalaus einföldCKBLA12
≈ 5:14 mín
High Output með kolumCKMA12
≈ 6:58 mín

Á 38" eða 44" dekkjum er loftmagnið tvöfalt til þrefalt meira og tíminn eykst í sama hlutfalli. Þar munar mest um tvöfalda kolalausa dælu.

Samanburður

Allar tölur hlið við hlið

Tölur frá ARB, mældar við 22 °C og 12V. Loftmagn er gefið upp í lítrum á mínútu, bæði á opnu (0 kPa) og við 200 kPa (29 psi), sem er nær raunverulegri notkun þegar dælt er í dekk.

Kolalaus tvöföldCKBLTA12 Tvöföld með kolumCKMTA12 Kolalaus einföldCKBLA12 High OutputCKMA12
Mótor Kolalaus Með kolum Kolalaus Með kolum
Loft við 0 kPa 260 l/mín 174 l/mín 130 l/mín 87 l/mín
Loft við 200 kPa 176 l/mín 132 l/mín 88 l/mín 66 l/mín
Straumur við 200 kPa 80 A 50 A 40 A 25 A
Vinnuhlutfall 100% 100% 100% 50%
Þrýstirofi slekkur á 150 psi 150 psi 150 psi 100 psi
Þyngd 7,2 kg 8,8 kg 4,5 kg 4,5 kg
Liðar (relay) Nei Já Nei Já
Fæst í 24V Nei Já Nei Já
Hentar best Stór dekk, oft hleypt úr, loftverkfæri Stór dekk, 12V eða 24V 33–35" dekk og loftlæsingar Minni dekk og loftlæsingar

Rafkerfið

Meira loft kallar á meiri straum

Kolalausa dælan er ekki bara hraðari, hún notar líka meiri orku. Á hvern lítra af lofti er straumnotkunin svipuð og í dælu með kolum, en dælan vinnur hraðar og dregur því meira í einu. Rafkerfið þarf að ráða við það.

90 A

Kolalaus tvöföld

Lögnin þarf að þola 90 A samfellt og halda 12,5V eða meira með vélina í gangi. Tvö 60 A öryggi fylgja.

45 A

Kolalaus einföld

Þarf lögn sem þolir 45 A samfellt. Hentar flestum nýlegum jeppum og pallbílum án breytinga á rafkerfi.

Snjallt

Ver rafkerfið

Tvöfalda kolalausa dælan ræsir mótorana hvorn á eftir öðrum og getur slökkt á öðrum þeirra ef spennan fellur, svo hún haldi áfram að vinna.

Hafðu vélina alltaf í gangi þegar þú pumpar í dekk. Stuttar og sverar rafmagnssnúrur skila meira lofti: lengri lögn þýðir meira viðnám og minna loft.

Kolalausa línan

Meira en bara nýr mótor

ARB hannaði kolalausu dælurnar frá grunni með rafeindastýringu sem fylgist með og stýrir öllu. Þetta er það sem þú færð umfram dælu með kolum.

50% meira loft

Kolalausi mótorinn snýst hraðar og skilar helmingi meira lofti en sambærileg dæla með kolum. Styttri tími við dekkin, meiri tími í ferðina.

Virk kæling

Rafstýrðar viftur kæla mótor og dælu og halda áfram eftir að slökkt er, þar til dælan hefur kólnað.

Rafræn hraðastýring

Hraðinn er stilltur sjálfvirkt eftir þrýstingi og lofthita, svo afköstin haldast jöfn við allar aðstæður.

Vörn fyrir dælu og bíl

Ver gegn spennutoppum, spennufalli, yfirstraumi og ef mótorinn stöðvast undir álagi.

Greining í rauntíma

Dælan lætur vita með hljóð- og ljósmerkjum ef eitthvað er að.

Viðhaldsfrír mótor

Engin kol sem slitna og engin þjónusta inni í mótornum.

Hraðlosandi festing

Kambfesting sem auðveldar ísetningu og gerir kleift að taka dæluna úr án verkfæra.

Engir liðar

Enginn liði (relay) í lögninni, sem einfaldar og flýtir fyrir ísetningu.

Snjöll ræsing (tvöföld)

Mótorarnir ræsa hvor á eftir öðrum svo straumskotið verði minna, og dælan getur keyrt á öðrum mótornum ef spennan fellur.

Hleyptu úr. Keyrðu. Pumpaðu í og haltu áfram.

Réttur loftþrýstingur í dekkjum er besta breytingin sem hægt er að gera á jeppa. Góð loftdæla gerir það fljótlegt og þægilegt.

Kolalaus · Öflugust

Kolalaus tvöföld loftdæla

Öflugasta loftdælan frá ARB. Tveir kolalausir mótorar skila 260 lítrum á mínútu og 50% meira lofti en tvöfalda dælan með kolum, en dælan er samt léttari og minni. Fyrir stór dekk, ferðir þar sem oft er hleypt úr og loftverkfæri.

Loft
260l/mín á opnu
Við 200 kPa
176l/mín
Þyngd
7,2 kgmeð festingu
Fá tilboð með ísetningu →

Helstu eiginleikar

  • Tveir kolalausir mótorar, 260 l/mín á opnu og 176 l/mín við 200 kPa
  • 100% vinnuhlutfall, getur gengið stanslaust
  • Snjöll ræsing og getur keyrt á öðrum mótornum ef spennan fellur
  • Rafræn hraðastýring, virk kæling og greining í rauntíma
  • Vörn gegn spennutoppum, spennufalli og yfirstraumi
  • Engir liðar og hraðlosandi kambfesting
  • Hentar fyrir loftlæsingar og loftverkfæri með loftkút

Tæknilegt

Vörunúmer CKBLTA12
Spenna 12V
Loft, 0 / 200 kPa 260 / 176 l/mín
Straumur, 0 / 200 kPa 30 / 80 A
Hámarksstraumur 45 A á mótor
Öryggi 2 × 60 A
Þrýstirofi 135–150 psi
Vinnuhlutfall 100%
Þyngd 7,2 kg
Mál (L × B × H) 210 × 280 × 100 mm
Kolalaus

Kolalaus einföld loftdæla

Sama kolalausa tæknin í minni pakka. 130 lítrar á mínútu, sem er 50% meira en High Output dælan með kolum í sömu stærð, og 100% vinnuhlutfall. Kjörin í flesta jeppa með 33–35" dekk og loftlæsingar.

Loft
130l/mín á opnu
Við 200 kPa
88l/mín
Þyngd
4,5 kgmeð festingu
Fá tilboð með ísetningu →

Helstu eiginleikar

  • Kolalaus mótor, 130 l/mín á opnu og 88 l/mín við 200 kPa
  • 100% vinnuhlutfall, í stað 50% á dælunni með kolum
  • Rafræn hraðastýring, virk kæling og greining í rauntíma
  • Vörn gegn spennutoppum, spennufalli og yfirstraumi
  • Hraðlosandi kambfesting, sjö mismunandi stöður
  • Engir liðar í lögninni
  • Hentar fyrir loftlæsingar

Tæknilegt

Vörunúmer CKBLA12
Spenna 12V
Loft, 0 / 200 kPa 130 / 88 l/mín
Straumur, 0 / 200 kPa 15 / 40 A
Hámarksstraumur 45 A
Öryggi 60 A
Þrýstirofi 135–150 psi
Vinnuhlutfall 100%
Þyngd 4,5 kg
Mál (L × B × H) 140 × 210 × 90 mm
Með kolum

Tvöföld loftdæla

Tvöfalda dælan sem setti viðmiðið, upphaflega þróuð að beiðni ástralska og bandaríska hersins. Tveir margsannaðir mótorar með kolum skila 174 lítrum á mínútu. Góður kostur fyrir stór dekk, og fæst líka fyrir 24V kerfi.

Loft
174l/mín á opnu
Við 200 kPa
132l/mín
Þyngd
8,8 kgmeð festingu
Fá tilboð með ísetningu →

Helstu eiginleikar

  • Tveir mótorar með kolum, 174 l/mín á opnu og 132 l/mín við 200 kPa
  • 100% vinnuhlutfall
  • Vatns- og rykþétt, með IP55 kæliviftu
  • Harðanóðíseraðir strokkar og teflonhúðaðar stimpilþéttingar
  • Innbyggð hitavörn og öryggisventill
  • Lögn með liðum, öryggjum og rofa fylgir
  • Fæst líka fyrir 24V (CKMTA24)

Tæknilegt

Vörunúmer CKMTA12
Spenna 12V (24V fæst)
Loft, 0 / 200 kPa 174 / 132 l/mín
Straumur, 0 / 200 kPa 28 / 50 A
Öryggi 2 × 40 A
Þrýstirofi 135–150 psi
Vinnuhlutfall 100%
Þyngd 8,8 kg
Mál (H × L × B) 102 × 190 × 275 mm
Með kolum · Vinsælust

High Output loftdæla

Vinsælasta dælan frá ARB um árabil. Lítil og létt, hentar þar sem pláss er takmarkað og er frábær fyrir loftlæsingar. Skilar 87 lítrum á mínútu, sem dugar vel fyrir minni dekk og stöku áfyllingu.

Loft
87l/mín á opnu
Við 200 kPa
66l/mín
Þyngd
4,5 kgmeð festingu
Fá tilboð með ísetningu →

Helstu eiginleikar

  • Mótor með kolum, 87 l/mín á opnu og 66 l/mín við 200 kPa
  • 50% vinnuhlutfall
  • Vatns- og rykþétt
  • Harðanóðíseraður strokkur og teflonhúðuð stimpilþétting
  • Innbyggð hitavörn og öryggisventill
  • Festing sem hægt er að snúa um 180°
  • Fæst líka fyrir 24V (CKMA24)

Tæknilegt

Vörunúmer CKMA12
Spenna 12V (24V fæst)
Loft, 0 / 200 kPa 87 / 66 l/mín
Straumur, 0 / 200 kPa 14 / 25 A
Þrýstirofi 70–100 psi
Vinnuhlutfall 50%
Þyngd 4,5 kg
Mál (H × L × B) 145 × 190 × 98 mm

Hvaða dæla?

Veldu eftir dekkjum og notkun

Stærð dekkjanna og hve oft þú hleypir úr ráða mestu.

01

Minni dekk og loftlæsingar

Jimny, minni jeppar eða 31–33" dekk, og stöku áfylling.

High Output (CKMA12) →
02

33–35" dekk, oft hleypt úr

Algengasta notkunin hér á landi. Hröð áfylling í lítilli dælu.

Kolalaus einföld (CKBLA12) →
03

35–38" dekk eða 24V rafkerfi

Mikið loft á lægra verði en kolalausa tvöfalda dælan, og dregur minni straum. Eina tvöfalda dælan sem fæst fyrir 24V.

Tvöföld með kolum (CKMTA12) →
04

38" og stærri, eða loftverkfæri

Breyttir jeppar, löng ferðalög og mikið loft. Sem allra fljótast.

Kolalaus tvöföld (CKBLTA12) →

Aukahlutir

Allt sem fylgir loftinu

Slöngur, mælar, tengi og festingar sem passa við ARB loftdælurnar. Bættu beint í körfuna.

Slöngur og mælar

ARB Pump Up kit slöngusett

ARB Pump Up kit slöngusett

7 m hitaþolin slanga, hraðtengi á ventil og millistykki fyrir bolta og fleira.

ARB loftslanga 7 m

ARB loftslanga 7 m

Hitaþolin framlenging, þolir 150 psi.

ARB loftbyssa með stafrænum mæli

ARB loftbyssa með stafrænum mæli

Mælir 0–200 psi og hleypir úr.

ARB loftbyssa með mæli

ARB loftbyssa með mæli

Olíufylltur mælir, 0–60 psi.

ARB loftslöngutaska

ARB loftslöngutaska

Heldur slöngu, mæli og aukahlutum saman.

ARB Speedy Seal viðgerðarsett

ARB Speedy Seal viðgerðarsett

Dekkjaviðgerðarsett fyrir sprungin dekk á ferðinni.

Lagnir, stýring og festingar

ARB Pressure Control

ARB Pressure Control

Stillir þrýstinginn og pumpar sjálfvirkt upp í rétt gildi, stýrt úr síma.

ARB Manifold Kit

ARB Manifold Kit

Margtengi fyrir slöngusett, loftlæsingar og loftpúða. Þolir hitann frá dælunni.

ARB loftkúpling

ARB loftkúpling

Hraðtengi fyrir slönguna, 1/4" NPT.

ARB lok fyrir loftkúplingu

ARB lok fyrir loftkúplingu

Ver tengið gegn ryki og óhreinindum.

Loftsía fyrir loftdælur

Loftsía fyrir loftdælur

Varasía fyrir ARB loftdælur.

Loftdælufesting í Land Cruiser 150 og 250

Loftdælufesting í Land Cruiser 150 og 250

Fyrir 2.8 lítra vél. Festist í upprunaleg boltagöt og passar fyrir allar ARB loftdælur.

Loftdælufesting í Jimny 2018+

Loftdælufesting í Jimny 2018+

Festing frá DRIF fyrir ARB loftdælu í Jimny.

Fleiri aukahlutir, til dæmis loftkútar, tengi og rofafestingar, eru í vöruflokknum Fylgihlutir fyrir loftdælur →

Ísetning

Við setjum dæluna í fyrir þig

Við bjóðum ísetningu á ARB loftdælum í flesta jeppa og pallbíla á verkstæðinu okkar í Mosfellsbæ. Sendu okkur upplýsingar um bílinn og við gerum þér tilboð í dælu, lagnir og ísetningu.

Þetta tryggjum við

  • Dælan fer hátt upp, ofan við vatnsborð í vaðakstri, og fjarri hita frá pústkerfi og vél.
  • Stuttar og sverar lagnir beint frá rafgeymi, með réttum öryggjum.
  • Hitaþolin tengi eða Manifold Kit við dæluna.
  • Rofi í mælaborð og tengi fyrir loftslöngu þar sem hentar.
  • Tenging við ARB loftlæsingar ef þær eru í bílnum.
ARB loftdæla í vélarrými

Fáðu tilboð

Fylltu út og við höfum samband með tilboð. Eða hringdu í 517-2900.

Takk fyrir!

Fyrirspurnin er komin til okkar og við höfum samband fljótlega með tilboð.

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Hvað þýðir „kolalaus“?

Á ensku „brushless“. Í hefðbundnum rafmótor flytja kol (burstar) strauminn inn í snúðinn. Í kolalausum mótor sér rafeindastýring um það, svo engir hlutir nudda saman. Mótorinn snýst hraðar, hitnar minna og slitnar ekki á sama hátt.

Hvað er vinnuhlutfall?

Vinnuhlutfall segir til um hve lengi dælan má ganga á hverri klukkustund. 100% þýðir að hún má ganga stanslaust, 50% að hún þarf jafnlanga hvíld og hún gengur. ARB miðar við 22 °C og 200 kPa.

Kolalausu dælurnar og tvöfalda dælan með kolum eru með 100% vinnuhlutfall. High Output (CKMA12) er með 50%.

Get ég notað dæluna fyrir loftlæsingar?

Já. Allar dælurnar hér eru gerðar til að knýja ARB loftlæsingar. Segulspólurnar tengjast beint á dæluna eða á Manifold Kit.

Þarf ég loftkút?

Ekki til að pumpa í dekk. Fyrir loftverkfæri sem þurfa meira en um 85 l/mín við 6 bör er mælt með loftkút, til dæmis ARB 4 lítra kútnum, svo verkfærið fái jafnt loft.

Fást kolalausu dælurnar fyrir 24V?

Ekki enn. Kolalausu dælurnar eru aðeins til fyrir 12V. Fyrir 24V kerfi er tvöfalda dælan með kolum (CKMTA24) eða High Output (CKMA24) rétti kosturinn. Hafðu samband og við pöntum.

Er hægt að gera við dælu með kolum?

Já. Mótorar með kolum eru viðgerðarhæfir og ARB selur ný kol, mótora, stimpilsett og O-hringjasett. Kolalausi mótorinn er viðhaldsfrír og þarf enga slíka þjónustu.

Setjið þið dæluna í?

Já. Við setjum ARB loftdælur í flesta jeppa og pallbíla á verkstæðinu okkar. Fáðu tilboð í dælu með ísetningu.

Hvað er ábyrgðin löng?

Þriggja ára ábyrgð frá ARB á öllum loftdælunum.

Viltu dælu með ísetningu?

Segðu okkur frá bílnum, dekkjunum og notkuninni og við gerum þér tilboð eða ráðleggjum þér.

Tæknilegar upplýsingar og myndir frá ARB, með fyrirvara um breytingar og prentvillur. Tími við að pumpa í dekk er áætlaður út frá loftmagni við 200 kPa og er aðeins til viðmiðunar. Raunverulegur tími fer eftir dekkjum, hitastigi og rafkerfi bílsins.