ARB pallhús

Pallhús frá ARB

ARB pallhús

Þrjár gerðir af pallhúsum úr UV-vörðu ABS-plasti, hönnuð og prófuð í Ástralíu. Frá hagkvæma Classic yfir í Ascent með samlæsingu, rafopnun og innfelldum gluggum.

Gerðir
3 Classic, Plus, Ascent
Verð frá
417.000 kr Classic, grófáferð
Ábyrgð
3 ár TÜV-vottuð

Þrjár gerðir

Hvaða pallhús hentar þér?

Öll húsin eru úr sama sterka ABS-plastinu með hertu, lituðu öryggisgleri. Munurinn liggur í læsingum, hurðinni og frágangi.

Verð frá miðast við ódýrustu útfærslu fyrir ódýrustu bíltegund, með vsk. Slétt hús og Ascent eru alltaf lökkuð í lit bílsins og er það innifalið. Endanlegt verð fer eftir bíl og glugga­útfærslu, sjá hér að neðan.

Classic

ARB Classic

Pallhúsið sem flestir velja. Gróf áferð sem þarf ekki að lakka, eða slétt áferð lökkuð í lit bílsins. Lyftigluggi að framan er staðalbúnaður og hliðargluggana velur þú sjálfur.

Verð frá
417.000 kr grófáferð
Slétt, lakkað
506.000 kr frá
Gler
4 mm hert og litað

Helstu eiginleikar

  • UV-varið ABS-plast, gróf eða slétt áferð
  • Lyftigluggi að framan með 2 mm lituðu öryggisgleri
  • Renni- eða lyftigluggar á hliðum, líka úr áli
  • Tvöfaldar læsingar á hurð og gluggum, tvær krækjur inni á palli
  • Innri lýsing og hátt LED-bremsuljós
  • Slétt, lyktarlaust innra byrði sem auðvelt er að þrífa
  • Festist eftir allri lengd pallsins

Tæknilegt

Efni ABS thermoplast, endurvinnanlegt
Áferð Gróf (CL) eða slétt (CLS)
Lökkun Skylda á sléttri áferð, valkvæð á grófri
Afturhurð Lyftihurð með tveimur handföngum
Gluggar A / B / C / CA / D / E, sjá neðar
Þakburður Þakbogar 50 kg eða toppgrind, sjá aukahluti
Ábyrgð 3 ár
ARB Slab-Sided pallhús

Slab-Sided útgáfan

Classic-húsið með álumgjörðum um gluggana fyrir aukið högg- og innbrotsþol. Fæst fyrir Hilux extra cab og Ranger 2022+. Verð frá 631.000 kr.

Classic Plus

ARB Classic Plus

Sama skel og Classic, en afturhurðin er með einu rafstýrðu handfangi og samlæsingu. Hurðin skellist í lás og læsist sjálfkrafa ef bíllinn er skilinn eftir ólæstur.

Verð frá
613.000 kr með lökkun
Læsing
Samlæsing fjarstýrð
Gler
5 mm hert og litað

Helstu eiginleikar

  • Eitt rafstýrt handfang á afturhurð, skellist í lás
  • Fjarstýrð samlæsing með bílnum, læsist sjálfkrafa
  • Neyðaropnun innan frá ef rafmagn fer af
  • 5 mm hert og litað öryggisgler í hurð og hliðum
  • Lyftigluggi að framan, renni- eða lyftigluggar á hliðum
  • Innri lýsing og hátt LED-bremsuljós
  • Þéttingar úr thermoplasti og sérstök þétting í neðri hornum hurðar
  • Festist í burðarpunkta pallsins

Tæknilegt

Efni ABS thermoplast, endurvinnanlegt
Áferð Slétt, lökkuð í lit bílsins
Afturhurð Rafstýrt handfang, samlæsing
Gluggar A / B / C / CA / D / E, sjá neðar
Þakburður Þakbogar 50 kg eða toppgrind
Ábyrgð 3 ár

Ascent

ARB Ascent

Flaggskip ARB. Hurð og lyftigluggar opnast með takka og læsast með bílnum, engin handföng utan á húsinu og engin sýnileg þétting. Loftræsting með framvísandi inntaki heldur rykinu úti.

Verð frá
907.000 kr með lökkun
Opnun
Rafræn hurð og gluggar
Gler
5 mm innfellt, rammalaust

Helstu eiginleikar

  • Fjarstýrð samlæsing á hurð og lyftigluggum, læsist sjálfkrafa
  • Rafræn opnun með takka, engin handföng utan á
  • Rammalausir gluggar sem skellast í lás
  • „Vanishing edge“ hönnun, engin sýnileg þétting
  • Loftræsting með framvísandi inntaki, yfirþrýstingur heldur ryki úti
  • Öflugt LED-ljós að innan og LED-bremsuljós í vindskeið
  • 5 mm hert og litað öryggisgler
  • Faldar festingar og lagnir að innan

Tæknilegt

Efni ABS thermoplast, endurvinnanlegt
Áferð Slétt, lökkuð í lit bílsins
Afturhurð Rafræn opnun, samlæsing
Hliðargluggar Lyftigluggar báðum megin, rafræn opnun
Loftræsting Innbyggð, framvísandi
Þakburður Toppgrind eða BASE Rack með Ascent-festisetti
Ábyrgð 3 ár

Gluggar

Veldu gluggana

Classic og Classic Plus fást með sex glugga­útfærslum. Bókstafurinn aftast í vörunúmerinu segir til um hana. Ascent kemur alltaf með lyftigluggum báðum megin.

A Rennigluggar báðum megin
B Lyftigluggi vinstra megin, rennigluggi hægra megin
C Lyftigluggar báðum megin
CA Lyftigluggar báðum megin með álumgjörð
D Lyftigluggi hægra megin, rennigluggi vinstra megin
E Engir hliðargluggar, lokaðar hliðar

Samanburður

Gerðirnar hlið við hlið

Classic Classic Plus Ascent
Verð frá 417.000 kr 613.000 kr 907.000 kr
Áferð Gróf eða slétt lökkuð Slétt lökkuð Slétt lökkuð
Afturhurð Tvö handföng, lyklalæsing Eitt rafstýrt handfang Rafræn opnun, engin handföng
Samlæsing með bíl – Já, hurð Já, hurð og gluggar
Hliðargluggar Renni- eða lyftigluggar Renni- eða lyftigluggar Lyftigluggar, rammalausir
Gler 4 mm hert, litað 5 mm hert, litað 5 mm hert, litað
Loftræsting Aukahlutur Aukahlutur Innbyggð
Innri lýsing Já Já Öflugt LED
Bremsuljós Hátt LED Hátt LED LED í vindskeið
Ábyrgð 3 ár 3 ár 3 ár

Bílar

Passar á þinn bíl?

ARB framleiðir pallhús fyrir þessa pallbíla. Merkin sýna hvaða gerðir fást á hvern bíl. Sérðu ekki þinn bíl? Hafðu samband.

ClassicClassic PlusAscentSlab-Sided

Enginn bíll fannst. Hafðu samband og við athugum málið.

Toyota

  • Hilux dual cab (2026–)ClassicAscent
  • Hilux SR5 / Rogue / GR Sport dual cab (2020–2025)ClassicClassic Plus
  • Hilux dual cab (2015–2025)ClassicClassic PlusAscent
  • Hilux extra cab (2015–)ClassicSlab-Sided
  • Hilux dual og extra cab (2005–2015)Classic

Ford

  • Ranger og Raptor dual cab (2022–)ClassicClassic PlusAscentSlab-Sided
  • Ranger extra cab (2022–)ClassicClassic PlusSlab-Sided
  • Ranger dual cab (2011–2022)ClassicClassic PlusAscent
  • Ranger extra cab (2011–2022)ClassicClassic Plus
  • Ranger (2006–2011)Classic

Isuzu

  • D-Max dual cab (2020–)ClassicClassic PlusAscent
  • D-Max dual cab (2016–2020)ClassicClassic Plus
  • D-Max dual cab (2012–2016)ClassicAscent

Mazda

  • BT-50 dual cab (2020–)ClassicClassic PlusAscent
  • BT-50 (2006–2011)Classic

Mitsubishi

  • L200 / Triton dual cab (2024–)ClassicClassic Plus
  • L200 / Triton dual cab (2015–2024)ClassicClassic PlusAscent
  • L200 / Triton dual cab (2006–2015)Classic

Volkswagen

  • Amarok dual cab (2023–)Ascent
  • Amarok dual cab (2010–2022)ClassicClassic PlusAscent

Nissan

  • Navara D40 dual cab (2005–2015)Classic

Mercedes-Benz

  • X-Class dual cab (2018–)Ascent

Aukahlutir

Aukahlutir á pallhúsið

Toppgrind, loftræsting, öryggisnet og fleira. Við pöntum með húsinu eða síðar.

Toppgrind og þakbogar

Toppgrind og þakbogar

ARB BASE Rack með festisetti fyrir Ascent og Classic, eða tveir þakbogar fyrir léttari farm.

Skoða BASE Rack →

Loftræsting

Loftræsting

Slim-Line loftræsting sem dregur úr ryki og móðu inni í húsinu.

Fá tilboð →

Öryggisnet

Öryggisnet

Net innan á glugga sem ver farminn og gerir innbrot erfiðara.

Fá tilboð →

Geymsluhólf í glugga

Geymsluhólf í glugga

Geymsluhólf sem fellur í lyftiglugga Ascent-hússins.

Fá tilboð →

Skúffur og innrétting

Skúffur og innrétting

Skúffukerfi undir pallhúsið og Molle-festirammar á hliðarnar fyrir rofa, loftslöngu og smærri búnað.

Fá tilboð →

Mjúklokun á hlera

Mjúklokun á hlera

Gasdempari sem lætur afturhlerann síga mjúklega niður í stað þess að skella, og léttir að loka honum.

Fá tilboð →

Tilboð

Svona færðu rétta húsið

Pallhúsin eru sérpöntuð fyrir hvern bíl, lökkuð í lit bílsins þar sem við á. Við setjum saman tilboð með ásetningu.

Segðu okkur frá bílnum

Tegund, árgerð, litakóði og hvort pallurinn er dual cab eða extra cab.

Veldu gerð og glugga

Classic, Classic Plus eða Ascent, gluggaútfærsla og aukahlutir eins og toppgrind eða loftræsting.

Þú færð tilboð

Tilboð með verði, afhendingartíma og ásetningu. 3 ára ábyrgð frá ARB.

Viltu ARB pallhús á bílinn?

Hafðu samband og við gerum tilboð í hús, lökkun og ásetningu.

Verð eru viðmiðunarverð með vsk., reiknuð út frá verðlista ARB Europe, og geta breyst með gengi og flutningskostnaði. Upplýsingar og myndir frá ARB, með fyrirvara um breytingar og prentvillur.