ARB dráttarstroffa með teygju, 9 m
ARB dráttarstroffa með teygju, 9 m
SKU:ARB705
Couldn't load pickup availability
Dráttarstroffa með teygju frá ARB, til að draga fastan bíl upp með öðrum bíl. Stroffan teygist um allt að 20% undir álagi og safnar orku sem losnar jafnt og þétt, svo fastur bíll losnar mjúklega án harkalegra rykkja. Það fer betur með bæði bílana og festipunktana.
Úr 100% næloni með styrktum augum og hlífðarhólkum yfir augu og sauma, sem lengja endingu hennar. Fæst í þremur stærðum: veldu stærð eftir þyngd bílsins sem á að draga.
Stærðir
| Brotþol | Lengd | Breidd | Þyngd |
|---|---|---|---|
| 8.000 kg | 9 m | 60 mm | – |
| 11.000 kg | 9 m | 80 mm | 3,1 kg |
| 15.000 kg | 9 m | 110 mm | 4,5 kg |
Teygja 20%. Litur appelsínugulur. 3 ára ábyrgð.
Athugið: Dráttarstroffa er eingöngu ætluð til að draga fastan bíl með öðrum bíl. Notið hana aldrei með dráttarspili og festið hana alltaf í viðurkennda festipunkta, til dæmis með spottalás. Gott er að leggja spottafarg yfir stroffuna.
