Skip to product information
1 of 10

ARB spil 12.000 lb með ofurtógi

ARB spil 12.000 lb með ofurtógi

SKU:ARW120SA

Regular price 295,000 kr
Regular price Sale price 295,000 kr
Sale Sold out
Taxes included.
Quantity

Hraðvirkt spil: allt að 20 m/mín

Nýja ARB dráttarspilið er eitt af hraðvirkustu 12.000 lb spilunum á markaðnum. Óhlaðið dregur það inn 20 metra af tógi á mínútu (65 fet/mín). Þegar bíllinn er laus og tógið fer upp á tromluna tekur það því sekúndur, ekki mínútur. Það munar miklu þegar spilað er oft, í kulda og myrkri eða þegar tíminn skiptir máli.

Hraðinn kemur frá sérstilltum 12V mótor (4,3 kW / 5,7 hp) og 4 þrepa gírkassa (171:1) úr hertu stáli, sem heldur góðum hraða undir álagi en notar minni straum og hitnar minna.

Hraði og straumur, fyrsta lag á tromlu

Tog Hraði Straumur
Óhlaðið 20 m/mín 55 A
1.816 kg 3,4 m/mín 186 A
2.724 kg 2,5 m/mín 235 A
3.632 kg 1,9 m/mín 291 A
4.540 kg 1,5 m/mín 347 A
5.443 kg 1,1 m/mín 410 A

Allt innbyggt, enginn stýrikassi

Albright segulrofinn (500 A) er tengdur beint við mótorinn, svo enginn fyrirferðarmikill stýrikassi fylgir og spilið kemur forvírað. Mótornum má snúa og kúplingshandfangið má setja í 16 stöður, svo spilið passar á flesta stuðara með hefðbundinni spilplötu.

  • Togkraftur 12.000 lb / 5.443 kg
  • Ofurtóg 11 mm x 24 m með hlífðarhulsu og álkefli (hawse fairlead)
  • Bremsa í gírkassa sem heldur 100% álagi og leyfir að keyra tógið út með mótor án álags
  • Þráðlaus fjarstýring (2,4 GHz, allt að 40 m) eða snúrufjarstýring (5 m), með tengli sem má festa þar sem hentar
  • IP68 vatns- og rykvörn á mótor og gírkassa
  • 500 A höfuðrofi með festingu, öryggissnúru og rykloki fylgir
  • Mál 600 x 207 x 200 mm, þyngd 34,5 kg

Tog eftir lögum á tromlu

Lag Tog Tóg á tromlu
1 5.443 kg 4,2 m
2 4.195 kg 9,3 m
3 3.413 kg 14,5 m
4 2.877 kg 20 m
5 2.486 kg 24 m
View full details