Denali D14 Destroyer LED aðalljós 6,75"
Denali D14 Destroyer LED aðalljós 6,75"
SKU:DNL.D14.050
Couldn't load pickup availability
Væntanlegt. Þessi vara er á leiðinni til okkar. Hægt er að panta fyrirfram og við höfum samband þegar hún kemur í hús.
Denali D14 Destroyer er öflugt 6,75" hringlaga LED aðalljós með lágum geisla og tveimur háum geislum. Við ísetningu er valið á milli E-merkts Destroyer háa geislans, sem gefur allt að 12.900 lúmen og um 460 m drægni, eða bandaríska DOT háa geislans.
Lági geislinn er ECE R149 vottaður og hægt er að breyta lit hans í rafgulan eða gulan með smellanlegum linsuhlífum (seldar sér). Grannt hús með M8 festingum passar bæði í ljósaskál og á sérfestingar, og auðvelt er að stilla ljósið eftir ísetningu. Vatnsvörn IP68/IP69K og truflanavörn (R10, CISPR 25), svo ljósið truflar hvorki talstöðvar né annan rafeindabúnað.
Hannað fyrir mótorhjól, en fjölhæfar festingar gera það að verkum að það hentar víða. 5 ára ábyrgð.
Geislar
| Hamur | Lúmen (hrá) | Afl | Drægni (1 lux) | Breidd geisla |
|---|---|---|---|---|
| Destroyer (lágur + hár, ECE) | 12.900 | 105W | 457 m | 70 m |
| DOT hár (lágur + hár) | 7.675 | 55W | 259 m | 70 m |
| Lágur geisli | 3.362 | 32W | 162 m | 70 m |
Almennar upplýsingar
| LED | 14 × 8W |
|---|---|
| Hámarksstraumur | 8A |
| Spenna | 9–32V |
| Stærð | 6,75" (171 mm) hringlaga, 76 mm djúpt |
| Þyngd | 0,9 kg |
| Vatnsvörn | IP68 / IP69K |
| Festing | 2 × M8, 120 mm milli gata |
| Tenging | 3 pinna DT tengi |
| Vottanir | ECE R149 (lágur og hár geisli), DOT/SAE |
| Ábyrgð | 5 ár |
| Í kassanum | Eitt ljós og fjórir M8 boltar úr ryðfríu stáli |
