Vision X SHOCKER Led Bar
Vision X SHOCKER Led Bar
SKU:SHK-BV12WPW
Couldn't load pickup availability
VISION X SHOCKER LEDBAR MEÐ TVÖFALDRI VIRKNI
Shocker ledbarið er mjög öflugt ljós fyrir þá allra kröfuhörðustu. Hægt er að skipta á milli breiðs punktljóss og flóðljóss með takka fyrir mismunandi aðstæður.
Kveiktu punktgeislann á háum hraða með breiðum geisla og langri drægni (allt að 25.680 lúmen og 1 lux á 688 m á 40" Shocker). Þegar þoka eða þungt færi hægir á þér kveikir þú á 170° víða og lága flóðljósinu og lýsir upp nóttina.
Hái geislinn (punktljósið) í Shocker ledbarinu er alltaf hvítt til að ná sem mestu ljósi og drægni. Í flóðljósinu getur þú hinsvegar valið milli hvíts og rafguls ljóss. Hvíta ljósið gefur meira ljósmagn en það rafgula getur hentað betur í erfiðum birtuskilyrðum.
Shocker er vinsælasta akstursljósið okkar frá upphafi og er í notkun á fjölmörgum jeppum, snjóbílum og á björgunarbát.
Vatnsvarið IP68/IP69K. Rafkerfi fylgir.
Leitarðu að minni stærð? 9", 12" og 20" fást í nýju Shocker Black Edition línunni, E-merkt og með aukaafli.
30" rafgulur Shocker á snjóbílnum hjá Björgunarsveitinni Ársæli.
12" hvítur Shocker á 6X6 Can-Am hjólinu hjá Björgunarsveit Biskupstungna.
| Vörunúmer | Breidd (tommur) | Breidd (cm) | Litur á flóðgeisla | Lúmen (hrá) | Drægni punktgeisla (1 lux) | Afl |
|---|---|---|---|---|---|---|
| SHK-BV12WPW | 20" | 55,6 cm | Hvítur | 26.730 lm | 525 m | 325W |
| SHK-BV18WPW | 30" | 80,8 cm | Hvítur | 40.095 lm | 654 m | 495W |
| SHK-BV18WPA | 30" | 80,8 cm | Rafgulur | 29.910 lm | 654 m | 415W |
| SHK-BV24WPW | 40" | 106 cm | Hvítur | 53.460 lm | 688 m | 630W |
| SHK-BV24WPA | 40" | 106 cm | Rafgulur | 39.880 lm | 688 m | 550W |

