1
/
af
3
ARB - Kolalaus loftdæla - tvöföld 12V 260 l/m
ARB - Kolalaus loftdæla - tvöföld 12V 260 l/m
Vörunúmer:CKBLTA12
Venjulegt verð
186.000 kr
Venjulegt verð
Útsöluverð
186.000 kr
Einingaverð
/
á
Með vsk
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
ARB - Kolalaus loftdæla, 12V
Við kynnum með stolti framtíð loftdælna, hér og nú, stax í dag! Nýjasta tækni tryggir óviðjafnanleg afköst, nýtni, áreiðanleika og skilvirkni.
Nýja kolalausa línan, sem samanstendur af dælum með einföldum og tvöföldum mótor, státa af 50% aukningu afkasta umfram eldri gerðir sem voru þó þær öflugustu á markaðnum.
EIGINLEIKAR:
- Kolalausir mótorar hafa færri slitfleti, snúast og þjappa hraðar, sem þýðir minni tími í að pumpa í dekkin og meiri tími fyrir ævintýri.
- Sjálfvirkar kæliviftur halda áfram að kæla eftir að slökkt er á dælunni og gæta þannig að hitastigi hennar og auka endingu.
- Dælurnar stilla snúningshraða sjálfkrafa til að viðhalda bestu mögulegu afköstum við mismunandi þrýsting og vinnsluhita.
- Innbyggð spennuvörn, ásamt yfirstraumsvörn og vörn gegn bilun í mótor.
- Sjálfvirk vöktun og stilling á afköstum taka tillit til ytri þátta, svo sem hita og sveiflum í rafkerfi ökutækisins.
- Tvöföldu dælurnar eru hannaðar með stigskiptri ræsingu til að draga úr höggi á rafkerfi ökutækisins við ræsingu.
- Rafliðar (relays) hafa verið fjarlægðir og Quick-release tengi einfalda uppsetningu.
- 100% vinnuferli (e. Duty cycle), þær mega dæla eins lengi og þú þarft á að halda!
- Tvöföldu dælurnar slökkva á öðrum mótornum við lága spennu.
- Rafkerfi og þrýstirofi fylgja með!
- ATH: Báðar gerðir eru einnig fáanlegar sem handhægar(e. portable) og eru þá með pólvörn, klemmurnar eru bláar og má tengja við hvorn pól sem er. Afskaplega hentugt að eiga í skúrnum til að kippa með í ferðalögin eða leysa vandamálin þegar þau koma upp!
