Áfram á vöruupplýsingar
1 af 9

Denali D14 Destroyer LED aðalljós 6,75"

Denali D14 Destroyer LED aðalljós 6,75"

Vörunúmer:DNL.D14.050

Venjulegt verð 103,000 kr
Venjulegt verð Útsöluverð 103,000 kr
Tilboð Uppselt
Taxes included.
Magn

Væntanlegt. Þessi vara er á leiðinni til okkar. Hægt er að panta fyrirfram og við höfum samband þegar hún kemur í hús.

Denali D14 Destroyer er öflugt 6,75" hringlaga LED aðalljós með lágum geisla og tveimur háum geislum. Við ísetningu er valið á milli E-merkts Destroyer háa geislans, sem gefur allt að 12.900 lúmen og um 460 m drægni, eða bandaríska DOT háa geislans.

Lági geislinn er ECE R149 vottaður og hægt er að breyta lit hans í rafgulan eða gulan með smellanlegum linsuhlífum (seldar sér). Grannt hús með M8 festingum passar bæði í ljósaskál og á sérfestingar, og auðvelt er að stilla ljósið eftir ísetningu. Vatnsvörn IP68/IP69K og truflanavörn (R10, CISPR 25), svo ljósið truflar hvorki talstöðvar né annan rafeindabúnað.

Hannað fyrir mótorhjól, en fjölhæfar festingar gera það að verkum að það hentar víða. 5 ára ábyrgð.

Geislar

Hamur Lúmen (hrá) Afl Drægni (1 lux) Breidd geisla
Destroyer (lágur + hár, ECE) 12.900 105W 457 m 70 m
DOT hár (lágur + hár) 7.675 55W 259 m 70 m
Lágur geisli 3.362 32W 162 m 70 m

Almennar upplýsingar

LED 14 × 8W
Hámarksstraumur 8A
Spenna 9–32V
Stærð 6,75" (171 mm) hringlaga, 76 mm djúpt
Þyngd 0,9 kg
Vatnsvörn IP68 / IP69K
Festing 2 × M8, 120 mm milli gata
Tenging 3 pinna DT tengi
Vottanir ECE R149 (lágur og hár geisli), DOT/SAE
Ábyrgð 5 ár
Í kassanum Eitt ljós og fjórir M8 boltar úr ryðfríu stáli
Sjá frekari upplýsingar