1
/
af
5
Vision X Shocker Black Edition ledbar, rafgult
Vision X Shocker Black Edition ledbar, rafgult
Vörunúmer:RA-SHK-BE4WRA
Venjulegt verð
100,000 kr
Venjulegt verð
Útsöluverð
100,000 kr
Taxes included.
Magn
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Ný kynslóð af Shocker, öflugasta ledbari Vision X, nú með E-merktum akstursham og aukaafli.
Shocker er með tvo geisla sem hægt er að nota hvorn í sínu lagi eða saman: langan punktgeisla sem lýsir langt fram á veginn og mjög breiðan flóðgeisla sem lýsir upp allt umhverfið. Í nýju kynslóðinni bætist þetta við:
- Aukaafl: enn meira ljós á langa geislanum þegar þess þarf.
- E-merktur aksturshamur: minna afl á langa geislanum svo ljósið sé löglegt í almennri umferð. Kveikt og slökkt eftir aðstæðum.
- Svartur bakgrunnur á bak við díóður og spegla, sem gerir ljósið stílhreinna.
- Rafgult dagljós í sama lit og breiði flóðgeislinn.
Hús úr flugvélaáli, nánast óbrjótanleg polycarbonate linsa, vatnsvörn IP68/IP69K og titringsþol 21 Grms. 7 ára ábyrgð.
Útfærslur
| Breidd | Heildarafl | Langur geisli (E-merkt / aukaafl) | Breiður geisli | Lúmen (virk) | LED | Stærð (B × H × D) | Þyngd |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 9" | 105W | 22W / 40W | 65W | 5.410 | 4 + 12 | 221 × 97 × 97 mm | 1,3 kg |
| 12" | 160W | 22W / 60W | 100W | 9.230 | 6 + 18 | 304 × 97 × 97 mm | 1,9 kg |
| 20" | 320W | 32W / 120W | 200W | 19.280 | 12 + 36 | 556 × 97 × 97 mm | 3,0 kg |
Almennar upplýsingar
| Eiginleiki | Gildi |
|---|---|
| Spenna | 11–32V |
| Litur á breiðum geisla og dagljósi | Rafgulur |
| Langur geisli | Hvítur |
| Líftími díóða | Um 50.000 klst. |
| Vinnuhiti | -40°C til +80°C |
| Vatnsvörn | IP68 / IP69K |
| Vottanir | ECE R10, R148, R149, CE |
| E-merkt | Já |
| Ábyrgð | 7 ár |
20" útgáfan er væntanleg. Hún er á leiðinni til okkar. Hægt er að panta fyrirfram og við höfum samband þegar hún kemur í hús.
